Rannsóknarsetur verslunarinnar (RSV) hefur birt nýjustu verðbólgutölur frá maí 2025 á vefnum veltan.is. Þar kemur fram að hækkun á matvælum heldur áfram og tengist sú hækkun alþjóðlegri þróun á hrávöruverði og auknum innflutningi.
Mesta verðhækkunin mældist á súkkulaði, eða 22,7%, og skýrist fyrst og fremst af hækkun á heimsmarkaðsverði kakós.
Þar á eftir voru kartöflur en þær hækkuðu um 19,8% og í þriðja og fjórða sæti voru kál og nautakjöt með 15,6% og 14,5% hækkun. Athygli vekur að innflutningur á nautakjöti jókst um rúm 60% á fyrstu fjórum mánuðum ársins en verðmæti innflutnings jókst um tæp 90%.