Fasteignafélagið Heimar hefur gengið frá samkomulagi um helstu skilmála um kaup á öllu hlutafé Grósku ehf., sem á samnefnda fasteignin að Bjargargötu 1, og Gróðurhússins ehf., sem rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni.

Aðaleigendur Grósku eru Björgólfur Thor Björgólfsson, Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson sem unnu saman hjá fjárfestingarfélaginu Novator Partners sem Björgólfur fór fyrir.

Í tilkynningu Heima til Kauphallarinnar kemur fram að uppbyggingaraðilar og eigendur Grósku verði eftir kaupin stærstu hluthafar Heima.

Birgir Már Ragnarsson, stjórnarformaður Grósku og meðeigandi Omega, segir í tilkynningunni að þeir komi inn sem langtímafjárfestar í fyrirtækið.

„Við teljum að reynsla okkar, sambönd og þekking muni hjálpa þeim áformum og hlökkum til samstarfsins.“

Tá afhentan 10 milljarða hlut

Gróska ehf. á fasteignina Grósku hugmyndhús að Bjargargötu 1 í 102 Reykjavík sem er um 18.573 fermetrar að stærð ásamt 6.252 fermetra bílakjallara með 205 stæðum. Samtals er eignin 24.825 fermetrar.

Heildarvirði viðskiptanna er metið á 13,85 milljarða króna og innifelur það virði fasteignarinnar og Gróðurhússins. Fyrirhugað er að kaupverðið muni greiðast að öllu leyti með útgáfu og afhendingu 258 milljón nýrra hluta í Heimum, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Miðað við það eignast seljendurnir 12,5% hlut í Heimum við söluna samkvæmt útreikningum Viðskiptablaðsins. Markaðsvirði eignarhlutarins miðað við 39 króna dagslokagengi Heima nemur 10 milljörðum króna.

Fram kemur að samkomulagið er háð ýmsum fyrirvörum, m.a. samþykki hluthafafundar, niðurstöðu áreiðanleikakannana, endanlega skjalagerð og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Á aðalfundi Heima, sem haldinn verður 11. mars næstkomandi, er fyrirhugað að leggja fram tillögu um að veita stjórn heimild til útgáfu nýs hlutafjár í Heimum til þess að standa við uppgjör á fyrirhuguðum viðskiptum.

Birgir Már: Lengi fylgst með Heimum

Birgir Már segir að Gróska hafi frá upphafi verið metnaðarfullt verkefni. Í dag sé beint samhengi á milli Grósku og nýsköpunar á Íslandi.

„Í viðræðum okkar við Heima þá höfum við sannfærst um að þar sé Grósku afar vel komið, enda deila forsvarsmenn þar okkar sýn og sannfæringu um tilgang og mikilvægi hússins fyrir íslenskt samfélag. Við, eigendur Omega, höfum lengi fylgst með Heimum og sjáum veruleg tækifæri til frekari uppbyggingar félagsins og vaxtar,“ segir Birgir Már.

„Stefna Heima um að leggja áherslu á lykileignir á eftirsóttum stöðum er í samræmi við það sem við höfum séð í stærstu borgum erlendis. Þróunin hjá stórum fasteignafélögum á alþjóðavísu hefur verið í áttina að sterkum kjörnum þar sem eigendur horfa til langs tíma varðandi framtíðarsýn og þróun svæða. Slík fasteignasöfn hafa verið eftirsótt meðal fjárfesta, til dæmis á hinum Norðurlöndunum og í Norður-Evrópu.

Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson, eigendur Omega.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Kaup Heima á Grósku munu leiða til aukinna verðmæta fyrir hluthafa félagsins . Kaupin falla vel að eignasafni félagsins og samræmast jafnframt þeirri sýn félagsins að skapa sterk kjarnasvæði. Þá er ákaflega ánægjulegt að fá þarna nýja og öfluga einkafjárfesta inn í hluthafahóp Heima sem munu styrkja enn frekar alþjóðleg tengsl okkar og tækifæri til að þróa fyrirtækið áfram,” segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima‏.

Viðskiptin munu fela í sér yfirtöku Heima á skuldabréfaflokknum GROSKA 29 GB. Flokkurinn er verðtryggður og ber 1,20% vexti. Gangvirði skuldabréfaflokksins á vaxtakjörum Heima er 4 milljarðar króna.

Stjórnendur Heima áætla að áhrif kaupanna á EBITDA félagsins á ársgrundvelli verði 780 m.kr. í kjölfar viðskipta.