Verðbólga á evrusvæðinu mældist 1,9% í maí og dróst saman um 0,3 prósentustig milli mánaða. Hún er þar með komin undir 2,0% markmið Seðlabanka Evrópu. Verðbólgan var undir spám hagfræðinga sem höfðu gert ráð fyrir 2,0% verðbólgu.
Svokölluð þjónustuverðbólga dróst saman um 0,8 prósentustig og fór úr 4,0% í 3,2% samkvæmt Eurostat. Það var helsta skýringin fyrir því að kjarnaverðbólga, sem undanskilur sveiflukennda vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, mældist 2,3% samanborið við 2,7% í apríl.
Verðbólgumælingin ýtir undir væntingar um að Seðlabanki Evrópu muni lækka vexti við boðaða vaxtaákvörðun á fimmtudaginn. Seðlabankinn hefur lækkað vexti sjö sinnum á síðastliðnum tólf mánuðum.
Í umfjöllun Reuters segir að verðbólguþrýstingur á evrusvæðinu sé svo lítill um þessar mundir að sumir hagfræðingar telji líkur á að verðbólga haldi áfram að hjaðna niður fyrir 2% markmið seðlabankans í ár.