Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,31% á milli mars og apríl og hefur nú hækkað um 9,9% á ársgrundvelli, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Verðbólgan jókst því um 0,1 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 9,8%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,08% á milli mánaða og hefur nú hækkað um 8,7% á síðastliðnum tólf mánuðum. Til samanburðar mældist árshækkun vísitölunnar án húsnæðis 8,6% í janúar.

Í tilkynningu Hagstofunnar segir að verð á mat- og drykkjarvörum hafi hækkað um 1,5% á milli mánaða. Hluti af þeirri hækkun skýrist af hækkun á mjólk, ostum og eggjum um 3,9%. Reiknuð húsaleiga hækkaði um 2,5%, verð á húsgögnum og heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 1,9% og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 19,5%.

Hagfræðideild Landsbankans hafði spáð því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 1% á milli mánaða og að verðbólgan færi því niður í 9,5%. Greining Íslandsbanka hafði spáð 0,6% hækkun vísitölunnar sem hefði haft í för með sér að verðbólga hefði hjaðnað í 9,1%.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti um eins prósentu stýrivaxtahækkun þann 22. mars síðastliðinn og eru stýrivextir bankans nú 7,5%. Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er þann 24. maí.