Verðbólga í Bandaríkjunum hjaðnaði annan mánuðinn í röð og mældist 8,3% í ágúst en til samanburðar var hún 8,5% í júlí og mældist 9,1% í júní. Vísitalan neysluverðs hækkaði um 0,1% á milli mánaða.
Verðbólgan mældist yfir spám greiningaraðila sem áttu von á að verðbólgan myndi hjaðna niður í 8,1%. Væntingar um minni verðbólgu byggðu m.a. á lækkun bensínverðs sem fór yfir 5 dali á gallonið í sumar en stendur nú í kringum 3,7 dali að meðaltali samkvæmt bandaríska bílgreinasambandinu.
Kjarnaverðbólga (e. core-price index), sem undanskilur sveiflukennda vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, mældist 6,3% í ágúst og hækkaði um 0,4 prósentustig frá því í júlí. Greinendur höfðu spáð því að kjarnaverðbólgan yrði nær 6,1%.
Bandarískar hlutabréfavísitölur hækkuðu um rúmlega eitt prósent í gær og verð á framvirkum hlutabréfasamningum í Bandaríkjunum í morgun. Í umfjöllun CNBC segir að væntingar um verðbólgan hafi náð hámarki í sumar ásamt veikari dollar og vel heppnaðri sókn Úkraínuhers um helgina skýri hækkanir á hlutabréfamörkuðum.
Næsta vaxtaákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna er boðuð í næstu viku en væntingar eru um að bankinn hækki stýrivexti um 0,75 prósentur. Bankinn hækkaði stýrivexti síðast í lok júlí um 75 punkta.