Verð­bólga á árs­grund­velli mældist 6,7% eftir að vísi­tala neyslu­verðs lækkaði um 0,16% milli mánaða.

Mun það vera mun meiri lækkun en greiningar­deildir bankanna höfðu spáð en búast var við því að verð­bólga yrði í kringum 7,2-7,3%.

Sam­kvæmt Hag­stofu Ís­lands hafði niður­felling á VSK-í­vilnun af raf­bílum á­hrif til hækkunar á verði þeirra en tekið var til­lit til raf­bíla­styrkja Orku­sjóðs við út­reikninga.

Kostnaður vegna bú­setu í eigin hús­næði (reiknuð húsa­leiga) hækkaði um 0,9% og hafði 0,18% á­hrif á vísi­töluna. Kostnaður vegna raf­magns og hita hækkaði um 3,7% og hafði 0,12% á­hrif.

Vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis mældist 5,2%.

„Vetrar­út­sölur eru víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 9,2% (-0,36%) og hús­gögn og heimilis­búnaður o. fl. um 5,0% (-0,29%). Einnig lækkuðu flug­far­gjöld til út­landa um 11,4% (-0,21%). At­hygli skal vakin á þeirri breytingu að í stað þess að taka inn verð­breytingar á „044 Annað vegna hús­næðis“ nú í janúar verður það gert í febrúar þegar fyrsta greiðsla skv. nýjum gjald­skrám fer yfir­leitt fram. Undir þennan lið fellur sorp­hreinsun, hol­ræsi og kalt vatn,” segir á vef Hag­stofunnar.

Endurskoðun aðferða við mat á húsnæðislið

Á vef Hagstofunnar er greint frá því að Hagstofa Íslands hefur um nokkurt skeið unnið að endurskoðun aðferða við mat á reiknaðri leigu í vísitölu neysluverðs.

„Með betri gögnum um húsaleigu hafa nú skapast forsendur til þess að breyta um aðferð. Það er mat Hagstofunnar að aðferð leiguígilda endurspegli nú betur tilgang mælingarinnar og verður aðferðin innleidd í vísitöluna á vormánuðum. Leiguígildin eru byggð á tölfræðilegu líkani á grundvelli gagna um húsaleigu. Endanleg dagsetning á innleiðingu breytinganna verður birt í mars næstkomandi ásamt greinagerð um málið.”