Verðbólgan í Þýskalandi dróst saman í júní frá 2,2% niður í 2,1% og dróst hún jafnframt saman í þremur héruðum samkvæmt fréttaflutningi Reuters. Uppfærðar verðbólgutölur fyrir stærsta hagkerfi evrusvæðisins verða birtar seinna í dag.

Í Bæjarlandi og Norðurrín-Vestfalíu fór verðbólgan niður í 1,8% og í Saxlandi lækkaði verðbólgan úr 2,3% niður í 2,2%.

Verðbólgutölur fyrir evrusvæðið verða birtar á morgun en spár gera ráð fyrir því að verðbólgan verði 2,0% fyrir júnímánuð sem er í samræmi við markmið Evrópska seðlabankans.

Seðlabanki Evrópu lækkaði vexti í byrjun júní en gaf þó í skyn að hlé yrði gert á vaxtalækkunarferlinu eftir að verðbólgan hækkaði úr 1,9% í maí og aftur upp í 2,0%.