Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,91% á milli janúar og febrúar hefur nú hækkað um 4,2% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan hjaðnar um 0,4 prósentur frá fyrri mánuði þegar hún mældist 4,6%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,06% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,7% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis dróst saman um 0,3 prósentustig milli mánaða en hún mældist 3,0% í janúar.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að verð á mat og drykkjarvörum hafi um 1,1% milli mánaða og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 5,6%.

Spáðu 4,2-4,3% verðbólgu í febrúar

Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans höfðu spáð því að verðbólgan myndi hjaðna 4,6% í 4,2-4,3% í febrúar.

Greining Íslandsbanka gerði ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) myndi hækka um 0,9% í febrúar og þar af leiðandi að verðbólga myndi hjaðna úr 4,6% í 4,2%. Hagfræðideild Landsbankans spáði því að vísitalan myndi hækka um 0,98% á milli mánaða og að verðbólgan færi niður í 4,3%.

Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 19. mars næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentur, úr 8,5% í 8,0% við síðustu vaxtaákvörðun þann 5. febrúar síðastliðinn.