Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,46% á milli júní og júlí og hefur nú hækkað um 6,3% á ársgrundvelli samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Verðbólgan jókst um 0,5 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,8%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,45% milli mánaða og mældist 4,2%. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis mældist 4,0% í júlí.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að sumarútsölur séu víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 6,2% og húsgögn og heimilisbúnaður um 6,2% milli mánaða.

Matvörur hækkuðu um 1,1% frá fyrri mánuði, kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 16,5%.

Greiningardeildirnar spáðu 5,9% verðbólgu í júlí

Greining Íslandsbanka hafði spáð því að vísitala neysluverð myndi hækka um 0,1% milli mánaða og að verðbólga myndi mælast 5,9% í júlí. Hagfræðideild Landsbankans spáði 0,15% hækkun vísitölunnar og að verðbólga myndi aukast lítillega upp í 5,9%‏.

Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er þann 21. ágúst næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans hélt stýrivöxtum óbreyttum í 9,25% við síðustu ákvörðun í maí.