Aðgerðir Seðlabankans virðast farnar að bíta á ýmsum sviðum. Peningastefnunefnd bankans ákvað á síðasta fundi að halda stýrivöxtum óbreyttum, eftir fjórtán hækkanir í röð. Verðbólga jókst þó á ný í september og mældist átta prósent.

Landsbankinn birti þjóðhagsspá til ársins 2026 fyrr í vikunni og Arion banki birti sína spá fyrir helgi. Verðbólguspár bankanna hafa tekið nokkrum breytingum frá því spár til ársins 2025 voru birtar í vor. Báðir bankar spá því að verðbólga verði að meðaltali 8,7% í ár og að hún verði yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans út spátímann.

Landsbankinn spáir því þó að áhrif vaxtahækkana komi skýrar fram á næstu mánuðum, dragi úr spennu í þjóðarbúinu og þoki verðbólgu niður á við. Árið 2024 spáir bankinn 5,3% verðbólgu, 4,3% árið 2025 og 3,6% árið 2026 en í maí hafði bankinn spáð meiri verðbólgu 2024 og 2025.

Arion banki spáir því sömuleiðis að verðbólgan hjaðni á næsta ári en verði treg í taumi niður á við á spátímanum og að mestu knúin áfram af innlendum kostnaðarhækkunum, sem séu talsvert háðar launakostnaði. Verðbólga verði að meðaltali 6,7% árið 2024, 5,4% árið 2025 og 3,9% árið 2026, talsvert meira en í fyrri spá.

Eiga mögulega aðra hækkun inni

Bæði Landsbankinn og Arion banki vekja athygli á því að mikil óvissa sé í kringum komandi kjaraviðræður en niðurstaðan geti stuðlað að aukinni verðbólgu. Því sé Seðlabankanum mikið í mun að hemja verðbólguvæntingar.

Í fundargerð peningastefnunefndar sem birtist á miðvikudag kemur fram að tveir nefndarmeðlimir hafi viljað 25 punkta hækkun. Rúmur mánuður er í næstu stýrivaxtaákvörðun og skiptar skoðanir á því hvort toppnum sé náð.

Arion banki gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki stýrivexti einu sinni til viðbótar í næsta mánuði og að þeir nái þar með hámarki í 9,75%. Reiknað er með því að nefndin fari varlega í vaxtalækkanir,  fyrsta komi í ágúst á næsta ári en vaxtalækkanir hefjist ekki af krafti fyrr en árið 2025. Stýrivextir verði að meðaltali 9,6% árið 2024, 7,7% árið 2025 og 5,8% árið 2026.

Landsbankinn spáir aftur á móti ekki frekari vaxtahækkunum í bili og telur í staðinn að peningastefnunefnd stígi varlega til jarðar í vaxtalækkunum. Gangi verðbólguspá eftir gerir bankinn ráð fyrir að vaxtalækkunarferli hefjist á öðrum ársfjórðungi næsta árs og stýrivextir verði 8% í lok þess árs, 5,25% í lok árs 2025 og  4,25% í lok árs 2026.

Nánar er fjallað um spár viðskiptabankanna í Viðskiptablaðinu, sem kom út í gærmorgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.