Hagfræðideild Landsbankans hefur fært upp verðbólguspá sína í kjölfar birtingar nýrra verðbólgutalna í morgun. Bankinn gerir nú ráð fyrir að verðbólga verði 4,3% í lok árs en fyrri spá hans gerði ráð fyrir 4,0% í árslok.

Verðbólga mældist 4,2% í júní og jókst um 0,4 prósentustig frá fyrri mánuði, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Verðbólgumælingin var talsvert yfir spám greiningardeilda bankanna sem höfðu spáð 3,8-3,9% verðbólgu í mánuðinum.

Landsbankinn gerir nú ráð fyrir að ársverðbólga verði 4,0% í júlí, 4,2% í ágúst og 4,4% í september. Fyrr í júní birti hagfræðideild bankans spá um 3,7% verðbólgu í júlí, 3,9% í ágúst og 4,1% í september.

Hækkanir á breiðum grunni

Í grein á vef Landsbankans segir hagfræðideildin að enginn einn liður skýri af hverju vísitala neysluverðs, sem mældist 0,84%, var umfram spá bankans um 0,56% hækkun milli mánaða.

„Matarkarfan hækkaði meira í verði en við bjuggumst við og hið sama má segja um föt og skó, tómstundir og menningu og hótel- og veitingastaðaþjónustu.

Að okkar mati ber verðbólgumæling júnímánaðar þess merki að verðbólguþrýstingur í hagkerfinu sé meiri en útlit var fyrir í vor. Hér spilar inn í að enginn einn liður þrýsti verðbólgumælingunni upp fyrir væntingar heldur voru hækkanir á breiðum grunni.“

Hagfræðideildin segir íslenska hagkerfið hafa staðið hátt vaxtastig vel af sér og ótal vísbendingar séu um að þrátt fyrir þétt peningalegt aðhald haldi eftirspurn í hagkerfinu áfram að aukast. Vísar hún m.a. í það að hagvöxtur mældist 2,6% á fyrsta fjórðungi, kortavelta hafi aukist talsvert að undanförnu og gengi krónunnar hafi styrkst talsvert án þess að það hafi skilað sér í minni innfluttri verðbólgu.

„Í ljósi þessa er líklega ekki að undra að verðbólga hjaðni ekki hraðar en raun ber vitni þessi misserin og því hlýtur peningastefnan að mótast af varúð við frekari tilslakanir á aðhaldinu.“