Verðbólga í Sviss mældist neikvæð um 0,1% í maí og dróst saman um 0,1 prósentustig frá aprílmánuði. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem verðhjöðnun yfir tólf mánaða tímabil mælist í Sviss.
Hópur fjárfesta spáir því nú að Svissneski seðlabankinn (SNB) muni á næstunni lækka vexti undir núll prósent til að ýta undir verðlag og ná tökum á svissneska frankanum sem hefur styrkst umtalsvert upp á síðkastið.
Verðlagning á skuldabréfamarkaði gefur til kynna að fjárfestar geri ráð fyrir tveimur 0,25 prósentu vaxtalækkunum fyrir árslok. Stýrivextir bankans yrðu neikvæðir um 0,25% raungerist sú spá.
Ávöxtunarkrafa á tveggja ára svissneskum ríkisskuldabréfum náði niður í -0,23% í dag og hafði ekki þá ekki verið lægri í þrjú ár.
Ýmsir fjárfestar hafa aukið vægi svissneska frankans í eignasafni sínu og dregið úr vægi Bandaríkjadals eftir að tollastríð Donalds Trumps hófst, að því er segir í frétt Financial Times.