Breskar fjölskyldur eru að nýta tækifærið til að festa kaup á glæsieignum í miðborg London þar sem verð hefur lækkað verulega.
Ástæða þess er minni áhugi erlendra auðmanna á fasteignum í borginni eftir breytingar á skattareglum sem áður hentuðu íbúum með skattalega búsetu erlendis (e. non-domiciled individuals).
Eignir í hverfum á borð við Belgravia, Kensington og Knightsbridge, sem hingað til hafa að mestu verið á færi alþjóðlegra kaupenda, eru nú að verða aðgengilegri breskum fjölskyldum sem áður höfðu ekki efni á slíkum fasteignum, samkvæmt Financial Times.
„Við sjáum töluvert meiri eftirspurn frá breskum kaupendum á þessum svæðum þar sem seljendur hafa lækkað verð úr því sem áður þótti óraunhæft,“ segir Matt Thompson, sölustjóri hjá fasteignafyrirtækinu Chestertons.
Markaðsgögn sýna að verð í Kensington og Chelsea hefur lækkað niður á sitt lægsta stig síðan 2013.
Samkvæmt Knight Frank hefur sala á lúxuseignum í London dregist saman um 7% fyrstu sex mánuði ársins, miðað við sama tímabil í fyrra. Fjöldi nýrra kaupenda sem skráir sig fyrir slíkar eignir hefur lækkað um 13%.
Samtals voru 706 verðlækkunartilkynningar skráðar fyrir miðborgareignir á tímabilinu frá júní 2024 til loka maí 2025, á móti 1.333 nýjum eignum sem komu á markað. Þetta jafnast á við 610 verðlækkanir og 1.484 nýjar eignir á sama tímabili ári fyrr.
Meðalsölutími hefur lengst um 50% og nemur nú að meðaltali 216 dögum, samanborið við 144 daga í fyrra.
Thompson hjá Chestertons segir að verðlækkun hafi numið allt að 5% frá áramótum, sem þýðir hundruð þúsunda punda afslátt af eignum yfir 5 milljónir punda.
Meðalsölutími hefur lengst um 50% og nemur nú að meðaltali 216 dögum, samanborið við 144 daga í fyrra.
Thompson hjá Chestertons segir að verðlækkun hafi numið allt að 5% frá áramótum, sem þýðir hundruð þúsunda punda afslátt af eignum yfir 5 milljónir punda.
Áður fyrr gátu erlendir ríkisborgarar haft aðsetur í Bretlandi án þess að greiða skatt af erlendum tekjum og eignatekjum. Með nýjum reglum sem tóku gildi í apríl er slíkt undanþágukerfi aðeins í gildi í fjögur ár og að því búnu lúta alþjóðlegar eignir viðkomandi breskri erfðafjárskattlagningu.
Þessi breyting hefur dregið verulega úr áhuga erlendra fjárfesta á að setjast að í London, sem hefur í för með sér minni samkeppni á markaði og aukið framboð fyrir breska kaupendur.
„Við sjáum breytt jafnvægi í eftirspurn og þetta er líklega stærsta breytingin á markaði með hágæða fasteignir í langan tíma,“ segir Lucian Cook, rannsóknarstjóri hjá Savills.