Virði hlutabréfa útgerðarfélagsins Vinnslustöðvarinnar hf. (VSV) lækka um 28,3% vegna fyrirhugaðrar hækkunar veiðigjalda, samkvæmt verðmati Reitunar. Þetta kemur fram í umsögn VSV um frumvarp atvinnuvegaráðherra.

Reitun hafði unnið fyrstu drög að verðmati fyrir VSV í lok mars síðastliðnum. Vegna óvissu í kjölfar kynningar atvinnuvega- og fjármálaráðherra á frumvarpi um veiðigjöld hækkaði Reitun áhættuálag félagsins um 2,5% vegna stjórnmálalegrar óvissu með tilheyrandi áhrifum á verðmat félagsins.

Verðmatið Reitunar / IFS, sem hefur annast verðmat á hlutabréfum Vinnslustöðvarinnar síðan félagið var afskráð af hlutabréfamarkaði árið 2007, byggir á sjóðstreymismati þar sem þekkt verð og afkoma eru lögð til grundvallar.

Í glæru um verðmatið vitnar VSV í skýrslu sérfræðinganefndar frá 2012, en höfundur var Daði Már Kristófersson, núverandi fjármálaráðherra, ásamt Stefáni B. Gunnlaugssyni, lektor við Háskólann á Akureyri:

„Breytingar á regluverki geta skapað óvissu um innihald og virði eignarréttar. Þannig mun innleiðing veiðigjalda hafa áhrif á virði sjávarútvegsfyrirtækja og rýra eignir eigenda þeirra. Ef nefna ætti eina meginstoð vestrænna hagkerfa og þeirrar velsældar sem þau hafa skapað væri það án efa einkaeignarrétturinn. Án hans hverfa flestir hvatar til fjárfestinga, umbóta og nýsköpunar. Án hans leggst doði yfir hagkerfin, eins og fjölmörg dæmi víða um heim sanna.“

Reitun áætlar einnig að árleg ávöxtun hlutabréfa Vinnslustöðvarinnar frá árinu 2002 hafi verið 11,28% í krónum talið. Til samanburðar hækkaði vísitala íbúðarverðs að jafnaði um 8,86% yfir sama tímabil. Þá hækkaði arðgreiðsluleiðrétt úrvalsvísitala Kauphallarinnar (OMXIGI) um 13,2% á ári yfir tímabilið 2009-2024.

Útgerðarnhlutinn hefði verið í mínus

Útgerðarhluti Vinnslustöðvarinnar, stærsta atvinnuveitanda í Vestmannaeyjum, hefði verið rekinn með samtals 4,7 milljóna evra tapi, eða sem nemur hátt í 700 milljónum króna, á tímabilinu 2013-2024, ef áformuð hækkun veiðigjalda hefði verið í gildi yfir allt tímabilið.

Til samanburðar nam hagnaður útgerðarhluta félagsins 30,3 milljónum evra, eða um 4,4 milljörðum króna miðað við núverandi gengi krónunnar, á árunum 2013-2024. Það samsvarar 6,7% af rekstrartekjum félagsins á tímabilinu.

Til að setja þessar fjárhæðir í samhengi bendir VSV á að nýtt uppsjávarskip kosti nú 40 milljónir evra og nýr togbátur um 18 milljónir evra.

„Tvöföldun veiðigjaldanna þýðir því augljóslega ekki að „Engin breyting verður á útreikningi veiðigjalds og mun útgerðin áfram halda 67% af hagnaði veiðanna en greiðir 33% af hagnaðinum fyrir afnot af auðlindinni" eins og fjármálaráðherra og atvinnuvegaráðherra héldu fram í kynningu sinni,“ segir í umsögn VSV.

Auki lántöku og skerði greiðslugetu

Félagið segir niðurstöður útreikninga sinna benda til þess að fyrir hækkun veiðigjalda fari 50% af hagnaði til ríkisins í formi veiðigjalda og tekjuskatts. Eftir hækkunina fari allur hagnaður útgerðarhlutans til ríkisins í formi veiðigjalda auk þess sem önnur starfsemi félagsins þurfi að standa undir taprekstri útgerðar.

„Í baksýnisspeglinum er ein lausn á greiðslu veiðigjalda. Hún er að taka lán. Lán aukast því og taka á sig aukinn vaxtakostnað ár frá ári. Hærri vaxtakostnaður dregur úr skattgreiðslum til ríkisins.“

Út frá þeim forsendum sem gefnar eru í umsögninni áætlar VSV að hefðu breytingarnar tekið gildi í upphafi tímabilsins væri eiginfjárhlutfall 18,6% í stað 28%, eins og það var í árslok 2024.

Þá hefði greiðslugeta félagsins minnkað og áætlar félagið að meðaltals útreiknuð hækkun veiðigjalda 2023 og 2024 nemi um 840 milljónum króna. Það jafngildi afborgunum af 21 milljörðum af þeim 35 sem félagið skuldi.

„Augljóst er að versnandi eiginfjárhlutfalli og minni geta til greiðslu skulda setur félagið í mikinn vanda. Vaxtaálög banka hækka með lægra eiginfjárhlutfalli og minni greiðslugetu.“

  • Félagið segir að við öllu þessu geti það einungis brugðist við með:
  • sölu eigna
  • lækkun kostnaðar sem felst fyrst og fremst í fækkun starfsmanna
  • stöðvun fjárfestinga
  • minni arðgreiðslum
  • nýtingu allarar greiðslugetu til að lækka skuldir