Verkís verkfræðistofa hagnaðist um 657 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 445 milljóna hagnað árið áður. Það samsvarar 48% aukningu milli ára. Stjórn Verkís leggur til að 575 milljónir króna verði greiddar í arð til hluthafa á árinu 2024, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins.

Rekstrartekjur verkfræðistofunnar námu 9 milljörðum króna og jukust um 23% milli ára.

Rekstrargjöld jukust um 21% frá fyrra og ári og námu 8,1 milljarði. Þar af voru laun og annar starfsmannakostnaður rúmir 6 milljarðar króna. Ársverk hjá samstæðunni voru 351 í fyrra samanborið við 325 á árinu 2022.

Eignir Verkís voru bókfærðar á 3,1 milljarð í árslok 2023 og eigið fé var tæplega 1,5 milljarðar króna. Verkís er í eigu starfsfólks og voru hluthafar 90 í lok síðasta árs.

Lykiltölur / Verkís

2023 2022
Tekjur 9.039 7.331 
Eignir 3.095 2.556
Eigið fé 1.458 1.106
Afkoma 657 445 
- í milljónum króna

Verkís starfar fyrst og fremst á Íslandi með aðalstöðvar í Reykjavík og ellefu starfsstöðvar á landsbyggðinni. Auk þess er félagið með starfsstöðvar á nokkrum stöðum erlendis, þar með talið útibú í Noregi. Verkís hefur tekið að sér verkefni erlendis á ýmsum sviðum „og vinnur áfram að því að styrkja stöðu sína á markaði í nokkrum löndum“, að því er segir í ársreikningnum.

Á Íslandi á Verkís dótturfélagið Raförninn ehf. ásamt lykilstarfsfólki þess félags auk smærri félaga. Erlendis á Verkís dótturfélag á Grænlandi og OPV Consulting AS í Noregi auk félaga í Póllandi, Kenía og Georgíu.