Hugbúnaðarfyrirtækið Vettvangur og systurfélag þess Apparatus unnu til alls þriggja verðlauna á Íslensku vefverðlaununum þann 21. mars sl.

Fyrirtækin fengu verðlaun fyrir App ársins og Hönnun og viðmót ársins. Í tilkynningu segir að í báðum tilvikum hafi verðlaunin verið veitt fyrir Lyfju-appið.

„Við erum að sjálfsögðu í skýjunum með þennan árangur. Hönnuðir okkar og forritarar hafa sýnt allar sínar bestu hliðar þar sem við setjum sérstakan fókus á samstarfsaðila okkar og þarfir notenda þeirra,“ segir Elmar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vettvangs.

Þá hlutu Vettvangur og Apparatus einnig verðlaunuð fyrir Söluvef ársins sem er vefur Dominios og er ekki í fyrsta skipti sem hann hlýtur verðlaun. Auk þess fengu Vettvangur og Apparatus þrjá svokallaða Upphlaupara fyrir annað sætið fyrir sælkeravef Nóa Siríus, vef Lífeyrissjóðs Verslunarmanna og Atlantsolíu Appið.

„Vettvangur vex og tekur miklum hamskiptum þessa dagana. Við erum nýbúin að kynna nýjan útlitsheim Vettvangs og fylgdum því eftir með nýjan vef sem við erum ljómandi ánægð með.“