Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti um 50 punkta.
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,5%.
„Verðbólga hefur hjaðnað undanfarið og mældist 5,1% í október. Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt lækkað og raunvextir því hækkað,” segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Að mati nefndarinnar gætir áhrifa þétts peningalegs taumhalds áfram í efnahagsumsvifum og hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar.
„Atvinnuleysi heldur áfram að þokast upp og horfur eru á að það dragi úr spennu í þjóðarbúinu þótt það gerist hægar en áður var talið.Þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalla þó á varkárni. Áfram þarf því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma,” segir í yfirlýsingu nefndarinnar.
Nefndin segir að mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.
Tæplega 70% þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins töldu að peningastefnunefndin myndi lækka vexti um 50 punkta. Rúmlega 10% svarenda töldu að nefndin myndi lækka vexti um 75 punkta og tæplega 6% sáu fram á 100 punkta lækkun.
Tæplega þrír af hverjum fjórum þátttakendum könnunarinnar töldu aðhald peningastefnunnar vera of mikið.