Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun sjóðfélaga í sameignardeild Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) í hag og féllst á kröfur hans um ógildingu á ákvæði samþykktabreytinga um síðustu áramót samhliða nýju viðmiði um lífslíkur sjóðfélaga. Stjórn lífeyrissjóðsins segist ætla að yfirfara dóminn og taka ákvörðun um næstu skref.

„Í ljósi rýni sjóðsins með fjölda ráðgjafa sem og staðfestingar ráðuneytisins á samþykktabreytingunum er viðbúið að horft verði til þess að áfrýja dómnum og óska eftir flýtimeðferð,“ segir í tilkynningu á vef sjóðsins.

„Fyrir liggur að meirihluti lífeyrissjóðakerfisins fór áþekka leið varðandi aldursháða lækkun áunninna réttinda vegna hækkandi lífaldurs. Því er mikilvægt fyrir alla sjóðfélaga og lífeyriskerfið í heild sinni að lyktir þess byggi á traustum grunni.“

LIVE segir að kjarni umræddra breytinga var að áunnin réttindi sjóðfélaga í sameignardeild voru umreiknuð þannig að mánaðarlegar greiðslur lækkuðu mismikið eftir aldri. Markmiðið hafi verið að mæta hækkandi lífaldri sjóðfélaga þar sem spáð er að ævi yngri sjóðfélaga lengist meira en þeirra sem eldri eru.

Spáin byggi á lífslíkutöflum sem gefnar eru út af Félagi íslenskra tryggingastærðfræðinga og staðfestar af fjármála- og efnahagsráðherra.

„Samþykktabreytingarnar voru vandlega undirbúnar af stjórnendum og stjórn LV í samráði við tryggingastærðfræðing sjóðsins og lögmannsstofur, sem og með samtali við stjórnvöld. Breytingarnar voru samþykktar af stjórn og í framhaldi af því af fulltrúaráði LV á ársfundi í mars 2022 og hlutu samþykki fjármála- og efnahagsráðherra í framhaldi af því.“

Auk LIVE fóru eftirfarandi lífeyrissjóðir sömu leið: Al­menni, EFÍA, Festa, SL líf­eyr­is­sjóður, Gildi og Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja.

LIVE segir að bein áhrif dómsins á réttindi og lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga muni ráðast af endanlegri niðurstöðu dómstóla.