Útlit er fyrir að verkfallsaðgerðir Eflingar hefjist á ný á miðnætti í kvöld eftir að viðræður stéttarfélagsins við Samtök atvinnulífsins sigldu í strand í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.
Viðræðurnar hófust á fimmtudag og var aðgerðunum – sem flestar höfðu hafist fyrr þann dag – frestað fram á miðnætti í kvöld á meðan freista skyldi þess að ná samningum. Það virðist ekki hafa tekist, en Efling segir ástæðuna þá að SA hafi reynst „óviljug til að koma til móts við Eflingu, jafnvel þótt aðeins væri um að ræða aðlaganir innan þess ramma sem þegar hefur verið samið um við önnur stéttarfélög“.
Því hafnar Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA hins vegar afdráttarlaust í samtali við Vísi nú fyrir stuttu og segir kröfurnar þvert á móti hafa verið „umtalsvert“ út fyrir þann ramma.
Í tilkynningunni er gangur sagður hafa verið í viðræðunum í gær og fyrradag en í dag hafi „blaðinu [verið] snúið við“, og samtökin með því sögð hafa siglt þeim í strand. „Á þeim nótum lauk deginum í dag, þar sem við skynjuðum stórbreytt og verra andrúmsloft af hálfu Samtaka atvinnulífsins.”
Tilkynningin í heild:
„Samtök atvinnulífsins sigldu í dag kjaraviðræðum við samninganefnd Eflingar í strand. Samtökin reyndust óviljug til að koma til móts við Eflingu, jafnvel þótt aðeins væri um að ræða aðlaganir innan þess ramma sem þegar hefur verið samið um við önnur stéttarfélög. Gangur var í viðræðum um tíma á föstudag og laugardag, en í dag sunnudag var blaðinu snúið við.
Jafnframt gengu Samtökin á bak orða sinna um að fulltrúar olíufyrirtækja og Samskipa kæmu til viðræðna við Eflingarfélaga hjá þessum fyrirtækjum. Samtökin höfðu lofað því að slíkar viðræður færu fram meðan verkfallsaðgerðum yrði frestað. Samkomulag þessa efnis lá fyrir.
Samninganefnd Eflingar samþykkti eftirfarandi ályktun:
Við höfum fyrir hönd Eflingarfélaga lagt okkur verulega fram til að ná samkomulagi við atvinnurekendur síðustu þrjá sólarhringa. Við sátum langa daga og veltum við hverjum steini. Við lögðum fram tillögur til lausnar þar sem við teygðum okkur eins langt og við gátum. Við höfum bent á ótal leiðir til aðlögunar á gildandi kjarasamningum að okkar aðstæðum og samsetningu. Því hefur öllu verið hafnað, eða verið svarað með útspilum sem eru vísvitandi móðganir ætlaðar til að keyra þessa tilraun í þrot. Á þeim nótum lauk deginum í dag, þar sem við skynjuðum stórbreytt og verra andrúmsloft af hálfu Samtaka atvinnulífsins heldur en í gær og fyrradag.”
Verkfallsaðgerðir félagsfólks í Eflingu á Íslandshótelum, Berjaya hótelkeðjunni, Edition hótelinu og hjá Samskip, Olíudreifingu og Skeljungi hefjast að nýju á miðnætti í kvöld.“