Viðskiptahalli Bandaríkjanna dróst saman um helming milli mars og apríl síðastliðnum, að stórum hluta þar sem tollar leiddu til mun minni innflutnings. The Wall Street Journal greinir frá.
Viðskiptahallinn var um 61,6 milljarðar dala í apríl, samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum sem viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag, og hefur ekki verið minni síðan í september 2023.
Til samanburðar var hallinn um 138,3 milljarðar dala í mars, sem er mesti viðskiptahalli þjóðarinnar í einum mánuði frá upphafi mælinga. Marsmælingin litaðist af því að fjöldi fyrirtækja fluttu inn vörur í auknum mæli áður en tollar Trumps, sem Bandaríkjaforsetinn tilkynnti um í byrjun apríl, tóku gildi.
Viðskiptahallinn dróst því saman um 55% milli mánaða. Hallinn hefur einungis einu sinni lækkað hlutfallslega meira milli mánaða frá upphafi mælinga en það var í febrúar 1992.
Innflutningur aldrei dregist meira saman
Innflutningur dróst saman um 16% milli mánaða og var um 351 milljarður dala. Þetta er mesti samdráttur í innflutningi milli mánaða frá upphafi mælinga.
Innflutningur á neysluvörum dróst saman um 32% milli mánaða og var um 69,9 milljarðar dala, einkum vegna 28 milljarða dala lækkunar í innflutningi á lyfjavörum.