Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 247 milljónum króna hjá verslunarveldinu S4S í fyrra. S4S rekur meðal annars Steinar Waage, AIR og Ellingsen. Til samanburðar nam EBITDA 178 milljónum árið 2023. 

Árið 2024 var að sögn Péturs Þór Halldórssonar, forstjóra S4S, ár endurskipulagningar hjá fyrirtækinu þar sem áhersla var lögð á bætta afkomu, hagræðingu í kostnaði og markvissa aðlögun að breyttu rekstrarumhverfi. „Við settum okkur skýr markmið fyrir árið 2024 og því er ánægjulegt að sjá að endurskipulagningin skilaði árangri.“

Heildarsala samstæðunnar nam 4,7 milljörðum króna á árinu 2024, samanborið við 5,3 milljarða árið áður. Þó veltan hafi dregist saman, einkum vegna tímabundinna lokana þriggja verslana í kjölfar eldsvoða í Kringlunni í júní í fyrra, náði félagið að bæta afkomu sína verulega. Verslanirnar opnuðu aftur um haustið og bættu tjónabætur sem S4S fékk vegna brunans tapaða framlegð.

Félagið skilaði 38 milljóna króna hagnaði eftir skatta í fyrra, sem er 70 milljóna króna viðsnúningur frá tapi upp á 32 milljónir árið áður. Það var í fyrsta og eina sinn í sögu félagsins sem það hefur skilað tapi en meginástæða tapsins var endurskipulagning birgða sem ráðist var í árið 2023.

„Þar skipti miklu markvissar hagræðingaraðgerðir, fækkun stöðugilda, betri innkaupastýring og lækkun á öðrum rekstrarkostnaði, þó húsaleiga hafi hækkað í takt við vísitölu,“ segir Pétur um viðsnúninginn í afkomu félagsins og bætir við: „Þrátt fyrir áskoranir ársins 2024 sýndi félagið að rekstur með skýrri stefnu og hnitmiðuðum aðgerðum getur skilað traustum og vaxandi árangri.“

Hvað yfirstandandi ár varðar segir Pétur að félagið muni áfram halda sama aðhaldi í rekstri, enda geri stjórnendur ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í efnahagslífinu, að minnsta kosti á fyrri hluta ársins. „Salan í apríl og maí hefur þó verið ágæt, sem gefur góð fyrirheit fyrir sumarið.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.