Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að vísa áfram til samþykktar bæjarstjórnar drögum að viljayfirlýsingu við Aflvaka þróunarfélag um uppbyggingu 5.000 íbúða lífsgæðakjarna á jörðinni Gunnarshólma sem liggur norðan við Suðurlandsveg, skammt austan við Hólmsheiði og Rauðavatn.

Viljayfirlýsingin verður tekin fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar Kópavogs, 13. febrúar næstkomandi.

Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að vísa áfram til samþykktar bæjarstjórnar drögum að viljayfirlýsingu við Aflvaka þróunarfélag um uppbyggingu 5.000 íbúða lífsgæðakjarna á jörðinni Gunnarshólma sem liggur norðan við Suðurlandsveg, skammt austan við Hólmsheiði og Rauðavatn.

Viljayfirlýsingin verður tekin fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar Kópavogs, 13. febrúar næstkomandi.

„Um stórhuga áform er að ræða sem fela í sér uppbyggingu á nýju íbúðahverfi með búsetuíbúðaformi, sem sérstaklega verður sniðið að þörfum fólks á þriðja æviskeiðinu (60 ára og eldri),“ segir í tilkynningu Kópavogsbæjar.

Loftmynd af svæðinu.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Fylla upp í helming af áætlaðri þörf hjúkrunarrýma

Jafnframt er gert ráð fyrir allt að 1.200 hjúkrunarrýmum á svæðinu þegar það er fullbyggt. Það jafngildir um helmingi þeirra hjúkrunarrýma sem fyrirséð er að muni vanta á höfuðborgarsvæðinu á næstu 15 árum.

Aukinheldur er fyrirhugað að reisa heilsukjarna þar sem starfrækt verður heilsuhús og nýsköpunarmiðstöð með áherslu á heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Bæjarfélagið segir að með því verði leitast við að skapa kjöraðstæður fyrir heilbrigðara líf, félagsskap, útiveru og afþreyingu.

Heilbrigðis- og öldrunarþjónustan sem byggð verður upp á svæðinu mun þjóna höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu.

Uppbyggingin taki átta ár

Áætlað er að uppbygging á svæðinu muni taka um átta ár eftir að viðeigandi leyfi hafa fengist og að fyrsta áfanga verði lokið á tveimur til þremur árum.

Jörðin sem um ræðir er í eigu Aflvaka og er innan bæjarmarka Kópavogs, en bærinn á einnig sjálfur mikið land á umræddu svæði. Svæðið er utan núverandi vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins en farið verður í viðræður við nágrannasveitarfélögin um breytingu á þeim.

Framkvæmdastjóri Aflvaka Þróunarfélags er Sigurður Stefánsson fyrrum fjármálastjóri CCP‏.

Í stjórn félagsins eru þeir Birgir Már Ragnarsson og Andri Sveinsson, eigendur fjárfestingafélagsins Omega ehf. sem var stærsti hluthafi Kerecis sem selt var fyrir 180 milljarða síðasta sumar. Í stjórn Aflvaka situr einnig Guðmundur J. Oddsson sem jafnframt er stjórnarmaður í Sidekick Health.

Fjöldi 80 ára og eldri mun tvöfaldast á næstu 15 árum

Kópavogsbær segir að stórátak þurfi í uppbyggingu húsnæðis og þjónustu fyrir fólk á efri árum. Áætlað sé að á næstu 15 árum muni Íslendingum yfir 65 ára aldri fjölga um 70%, úr 50 þúsund í um 85 þúsund. Þá mun fjöldi 80 ára og eldri tvöfaldast á sama tímabili.

Þá sé ljóst að vegna fólksfjölgunar er yfirvofandi verulegur skortur á íbúðahúsnæði. Þetta verkefni er stór þáttur í úrbótum þar á.

„Gangi áformin eftir er Kópavogsbær ekki aðeins að stíga mikilvægt skref í að leysa stórar áskoranir er snúa að húsnæðisvanda höfuðborgarsvæðisins og öldrun þjóðar heldur er hér um að ræða nýjan og spennandi valkost sem ekki hefur verið í boði áður,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri.

„Eldri bæjarbúar eru ört vaxandi og fjölbreyttur hópur og mikilvægt að bjóða uppá fleiri búsetumöguleika til að mæta betur þörfum þeirra. Hér eru metnaðarfull áform um uppbyggingu á lífsgæðakjarna sem ríma vel við stefnu Kópavogsbæjar.“