Kínversk stjórnvöld hafa kortlagt áætlun um að auka neyslu meðal almennings í landinu, meðal annars með því að auka tekjur. Áætlunin er hluti af stefnu ríkisstjórnarinnar um að styðja við kínverska hagkerfið í ljósi aukinna tolla frá Donald Trump.
Skýrsla frá kínverska ríkisráðinu, sem gefin var út í gær, minnist á mikilvægi þess að koma á stöðugleika á kínverska hlutabréfa- og fasteignamarkaðinn ásamt því að reyna að hækka fæðingartíðni landsins.
Kínversk stjórnvöld hafa í auknum mæli viðurkennt að grípa þurfi til nauðsynlegra aðgerða til að auka neyslu. Á þingfundi kommúnistaflokksins, sem haldinn var í þessum mánuði, sögðu flokksmenn til dæmis í fyrsta skipti síðan Xi Jinping komst til valda að neysluaukning væri forgangsverkefni fyrir Kína.
Áætlunin nær yfir átta mismunandi svið og lýsir til að mynda áformum um að hvetja til barneigna með því að lengja fæðingarorlof.
Héraðsstjórnir hafa þegar byrjað að styðja við þá áætlun en Hohhot, höfuðborg Innri Mongólíu, hefur til dæmis kynnt áætlanir um niðurgreiðslu á barnatengdum útgjöldum.
Kínverjar hafa sett sér 5% vaxtarmarkmið fyrir árið 2025 og telja aukna neyslu vera lykilatriði í að ná því markmiði. Aukin alþjóðleg spenna og tollar hafa hægt á kínverskum útflutningi en útflutningur samsvaraði þriðjungi af hagvexti landsins í fyrra.