Stjórnvöld stefna að því að byggð verði 600 ný hjúkrunarrými í landinu á árunum 2026-2028, eða um 200 á ári að meðaltali. Sú tala komi til viðbótar við þau 120 rými sem tekin verði í notkun á þessu ári, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Ráðherranefnd í öldrunarþjónustu hefur falið stýrihópi um uppbyggingu hjúkrunarheimila, undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, að fylgja eftir áherslum stjórnvalda og tekur hann til starfa á næstu dögum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra stýrir umræddri ráðherranefnd en í henni eiga einnig fast sæti Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra.
Til að setja ofangreint markmið stjórnvalda um uppbyggingu hjúkrunarrýma í samhengi, þá fjölgaði hjúkrunarrýmum um ríflega 40 á ári á tímabilinu 2017-2024 en á sama tíma fjölgaði þeim sem biðu þeirra úr 331 í 614.
Semjavið sveitarfélög um úthlutun lóða
Ráðherranefndin hefur ákveðið næstu skref í uppbyggingu hjúkrunarheimila, sem eru m.a. að gerðir verða samningar við átta sveitarfélög um úthlutun lóða undir hjúkrunarheimili í samræmi við breytt fyrirkomulag kostnaðar- og ábyrgðarskiptingar ríkis og sveitarfélaga sem undirritað var 19. mars sl.
„Hafin verður vinna við mótun aðferðafræði við uppbyggingu hjúkrunarheimila á fyrrgreindum lóðum þar sem möguleikar verða kannaðir á aukinni aðkomu langtímafjárfesta, eins og lífeyrissjóða og óhagnaðardrifinna aðila.“
Þá kemur fram að samningar verði gerðir um uppbyggingu og rekstur 10 hjúkrunarheimila sem hafinn var undirbúningur að á síðasta kjörtímabili „en áhersla lögð á bætta samningsskilmála fyrir ríkið vegna þeirrar mikilvægu þjónustu sem er undir“.
Auk þess verði unnið að samkomulagi við aðila sem þegar reka hjúkrunarheimili um stækkunarmöguleika á eldri heimilum.
„Það er verulega tímabært að hefja fyrir alvöru uppbyggingu hjúkrunarheimila í landinu og hér er komin verkstjórn til starfa sem mun sjá til þess. Eldra fólkið okkar á skilið þá áherslu sem ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar leggur á málaflokkinn og ég er stolt að leiða þá vinnu í mínu ráðuneyti,” segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.