Advania vinnur nú að smíði séríslensks gervigreindarskýs, sem mun opna fyrir hagnýtingu gervigreindar í rekstri og nýsköpun íslenskra fyrirtækja og stofnana. Með tilkomu þess fá fyrirtæki aðgang að gervigreindarskýinu sem hýst er hér á landi.
Uppsetning og högun tryggir að gagnavinnsla fyrirtækja og rýni á viðkvæmum gögnum nýtist eingöngu eiganda gagnanna.
Gervigreindarskýið er unnið í samvinnu við sérfræðinga Nvidia en Advania er meðal annars svokallaður Elite-partner tæknifyrirtækisins.
Lausn Advania er jafnframt liður í þeirri vegferð að tryggja stafrænt fullveldi Íslands en gervigreindarský Advania mun hýsa öll gögn á Íslandi með möguleika á landfræðilegum aðskilnaði innanlands.
Hafsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna hjá Advania, segir í samtali við Viðskiptablaðið að Advania hafi undanfarin ár fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir slíkri lausn frá fyrirtækjum og stofnunum.
„Okkar kjarnastarfsemi felst í því að hýsa og reka tölvukerfi og við höfum fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir því að keyra ýmiss konar gögn innanlands. Fyrirtæki munu að sjálfsögðu halda áfram að notast við erlenda innviði en okkar gervigreindarský er nauðsynleg viðbót við flóruna.“
Samhliða þessu hefur Advania aukið aðkomu félagsins í íslensku viðskiptalífi með því að koma til fyrirtækja og mennta bæði starfsmenn og stjórnendur. Hafsteinn segir að tæknin sé að þróast það ört að tæknimál séu ekki lengur bara einkamál tölvusérfræðinga.
„Eftir því sem þessi umræða þróast þá vakna líka upp margar spurningar í tengslum við lögsögu gagna. Þessi umræða á sér nú stað um allan heim og er drifin áfram að hluta til af geópólitískum ástæðum.“
Hafsteinn bætir við að slíkar tæknilausnir gætu reynst fyrirtækjum dýr fjárfestingin og vildi Advania því koma inn á markað með lausn sem fyrirtæki gætu nýtt sér til að stíga fram hjá þeim fjárhagslega þröskuldi.
„Almennt séð er hinn stafræni heimur að keyra áfram allt viðskiptalíf. Við höfum alltaf boðið fyrirtækjum að nýta okkar tæknilausnir og þróunin yfir í gervigreind er bara eðlileg viðbót við okkar sérhæfingu.“