Orkuveitan, Transition Labs og Clean Air Task Force (CATF) hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um þróun á tækni til djúpnýtingar á jarðvarma og prófunum hér á landi. Vonir eru bundnar við að slík nýting geti leitt til aukins orkuöryggis og orkusjálfstæðis víða um heim.

Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni, segir aðkomu Orkuveitunnar fyrst og fremst felast í því að leggja til sérfræðiþekkingu sem fyrirtækið búi yfir til að þróa nýja tækni í hitaupptöku og leiða þróunarverkefni hér á landi.

Verkefnið styðji þá við stefnumarkmið Orkuveitunnar um bætta auðlindanýtingu þar sem möguleiki sé á að nýta tæknina í holum og á auðlindasvæðum Orkuveitunnar sem hingað til hafa ekki verið nýtanleg.

„Það eru mörg hagstæð skilyrði hér á landi fyrir þróun þessarar tækni sem mun stuðla að hreinni, stöðugri og hagkvæmri endurnýjanlegri orku. Markmiðið með samstarfinu er að flýta fyrir þróun, stuðla að hnattrænu kolefnishlutleysi og verja hugverk sem gætu orðið til,“ segir Hera.

Í tilkynningu segir að flestar af þeim háhitaauðlindum sem finnast á Íslandi á hentugum stað hafi þegar verið nýttar. Næsta bylting í jarðhita muni þá koma með nýtingu auðlinda sem liggja dýpra og má finna nánast hvar sem er á Íslandi.

Þessi nýting verður framkvæmd t.d. með EGS (engineered geothermal systems) sem mætti kalla þurra djúpnýtingu en hefur ekki verið beitt á Íslandi áður.