Faxaflóahafnir hafa gert samstarfssamning við íslenska orkutæknifyrirtækið SnerpaPower um notkun á hugbúnaðarlausn fyrirtækisins til að styðja við rafvæðingu hafnarinnar.
Samkvæmt samningnum mun SnerpaPower útvega Faxaflóahöfnum orkustýringarkerfi sem er sérstaklega hannað til að spá fyrir um raforkunotkun hafnarinnar og hámarka nýtingu rafinnviða á skilvirkan hátt.
Í tilkynningu er bent á að viðbúið sé að með tilkomu fyrirhugaðra stærri landtenginga og tengingu fleiri skipa muni raforkuþörf hafnarsvæðisins aukast verulega. Lausn SnerpaPower er ætlað að styðja Faxaflóhafnir í því að bregðast við þeirri þróun á öruggan, sjálfbæran og kostnaðarskilvirkan hátt. Þá sé það skref í átt að aukinni nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa í hafnarstarfsemi og minni losun gróðurhúsalofttegunda.
Nú þegar hafi minni skemmtiferðaskip sem komið hafa í Gömlu höfnina nýtt sér landtengningu rafmagns á Miðbakka og Faxagarði en fram undan séu enn stærri landtengingarverkefni sem munu gera stærri skipum kleift að tengjast landrafmagni. Innleiðing hugbúnaðarins sé liður í undirbúningi þeirra verkefna.
„Við erum virkilega spennt fyrir samstarfinu við SnerpaPower. Rafvæðing hafna er mikilvægur þáttur í aðgerðaáætlun Íslands um að verða leiðandi í loftslagsvænum siglingum á heimsvísu. Í því samhengi er lausn SnerpaPower mikilvæg til að tryggja hagkvæmni og hámarksnýtingu innviða,“ segir J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða hjá Faxaflóahöfnum.
Hugbúnaðarlausn SnerpaPower gerir Faxaflóahöfnum kleift að nýta rauntímagögn og sjálfvirknivæða áætlanagerð um raforkunotkun, bæta eftirlit með raforkukostnaði og uppfylla samningsskyldur. Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Snerpa Power, segir þau stolt af því að geta stutt Faxaflóahafnir í að efla sjálfbærni í rekstri íslenskra hafna.
„Hugbúnaðarlausnir okkar gera höfnum kleift að mæta orkuþörf sinna viðskiptavina á skilvirkan og hagkvæman hátt. Það er virkilega ánægjulegt að styðja við metnaðarfulla vegferð Faxaflóahafna í orkuskiptum,“ segir Íris.