Evrópusambandið hefur komist að þeirri niðurstöðu að gerviafslættir, söluþrýstingur og aðrar aðferðir sem notaðar eru af kínversku netversluninni Shein brjóti gegn lögum sambandsins.
Á vef BBC segir að ESB hafi nú gefið Shein einn mánuð til að bregðast við niðurstöðum sínum eða sæta sektum vegna sölu í þeim Evrópulöndum þar sem tískuverslunin er sögð hafa brotið lög.
„Það er nú hlutverk Shein að stíga til hliðar, virða reglurnar og breyta starfsháttum sínum að fullu í samræmi við neytendastaðla ESB,“ segir Michael McGrath dómsmálaráðherra ESB sem vísar jafnframt til villandi fullyrðinga og vörumerkinga.
Talsmaður Shein segir að það sé forgangsverkefni fyrirtækisins að tryggja að evrópskir neytendur geti notið öruggrar, áreiðanlegrar og ánægjulegrar netverslunarupplifunar.
Samkvæmt rannsókn frá evrópskum neytendasamtökum fundust dæmi um að Shein hafi þóst bjóða viðskiptavinum betri tilboð með því að sýna verðlækkanir sem voru ekki byggðar á raunverulegum fyrri verðum og villandi frestum til að þrýsta á kaup neytenda.