Ný vísitala leiguverðs HMS hækkaði um 3,2% á milli apríl og maí. Vísitalan hefur nú hækkað um 13,3% á ársgrundvelli, en til samanburðar mældist árshækkun leiguverðs síðast meiri árið 2017.

„Þó er hækkun vísitölunnar lægri að raunvirði en hún var árið 2017. Í maí síðastliðnum var raunverðshækkun leiguvísitölunnar á ársgrundvelli um 7,2 prósent, en hækkunin var á bilinu 10 til 12 prósent árið 2017,“ segir í frétt á heimasíðu HMS.

Í gær greindi HMS frá því að ný vísitala íbúðaverðs hefði hækkað um 1,4% milli apríl og maímánaðar. Íbúðaverð hefur nú hækkað um 8,4% á ársgrundvelli.