Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í rúmt ár ef marka má Væntingarvísitölu Gallup í október. Vísitalan hrapaði um 35,7 stig milli mánaða og mælist nú 32 stig.
Vísitalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífs. Skali hennar er frá 0-200 og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir.
Greining Íslandsbanka fjallar um málið í morgunkorni sínu í dag og segir að aðeins einu sinni hafi vísitalan lækkað svo mikil milli mánaða. Það var í bankahruninu í nóvember 2008.
Mikið af neikvæðum fréttum
„Engan þarf að undra að vísitalan lækki á milli mánaða nú enda hefur fátt annað verið í fréttum undanfarnar vikur en skuldavandi heimilanna og yfirvofandi uppsagnir opinberra starfsmanna en mikill niðurskurður er boðaður í fjárlögum sem lögð voru fram í byrjun þessa mánaðar.
Þó kemur þessi mikla lækkun nú töluvert á óvart enda hefur vísitalan farið hækkandi undanfarið og stóð í síðasta mánuði í næsthæsta gildi sem hún hefur náð frá því fyrir hrun.“
Að meðaltali hefur vísitalan mælst rúm 40 stig frá bankahruni. Segir að því sé augljóslega mun svartara yfir landanum nú en undanfarin misseri. Um verulegt baksla er að ræða á þróun vísitölunnar.
Allar undirvísitölur lækka
Tiltrú fólks á að ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar muni batna lækkar mest af undirvísitölum. Þær lækkuðu allar á milli mánaða. Væntingar neytenda til næstu sex mánaða lækkuðu um 52,7 stig og mælast nú 48,6 stig.
Mat á núverandi ástandi lækkar um 10,2 stig og mælist nú 7 stig. Mat á atvinnuástandinu lækkar um 40,1 stig og mælist nú 32,5 stig og mat á efnahagslífinu um 34,9 stig og mælist nú 31,4 stig.