Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagði í gærkvöldi að bankinn sjái fyrir sér að vextir verði lækkaðir um að minnsta kosti 0,75% á næsta ári.
Seðlabankinn hefur haldið vöxtum óbreyttum við síðustu þrjár vaxtaákvarðanir en greindi frá fyrirhugðum vaxtalækkunum í gær.
Samkvæmt The Wall Street Journal hefur þetta ekki stöðvað vogunarsjóði í að halda áfram að skortselja sjóði sem veita brúar- og skammtímafjármögnun fyrir atvinnuhúsnæði (e. Mortgage real-estate investment trusts, mREITS).
Muddy Waters, vogunarsjóður Carson Block, tilkynnti í síðustu viku skortstöðu í Blackstone Mortgage Trust.
Viceroy Research, sem skortseldi m.a. bréf í Samhällsbyggnadsbolaget, SBB, eitt stærsta leigufélag Svíþjóðar þegar það kemur að atvinnuhúsnæði, greindi frá skortstöðu í Arbor Realty Trust um miðjan nóvember.
Samkvæmt WSJ hefur hvorugur vogunarsjóðurinn greint frá stærð stöðu sinnar en um 20% hlutabréfa Blacktone og 33% af bréfum Arbor eru á láni sem gefur til kynna hversu margir eru að skortselja bréfin.
Svokallaðir mREIT-sjóðir hafa tapað um þriðjung af virði sínu frá því að seðlabankinn byrjaði að hækka vexti í mars 2022.
Verðbréf í Blackstone Mortgage Trust og Arbor Realty Trust hafa hins vegar hækkað síðastliðinn mánuð þar sem fjárfestar telja vaxtahækkunarfasa seðlabankans lokið. Eftir tilkynningu um vaxtalækkanir í gær hækkuðu bréf beggja um tæplega 4%.
Vogunarsjóðirnir virðast þó vera veðja á að mREIT-sjóðir muni eiga erfitt uppdráttar á næsta ári þar sem fjölmörg lán eru á gjalddaga um mitt næsta ár. Sjóðirnir þurfa því að endurfjármagna eignir sem hafa hrunið í verði.
Mun þetta verða Blackstone sérstaklega erfitt þar sem um 27% af lánabókinni er í skrifstofuhúsnæði sem hefur tapað 35% af virði sínu frá því að vaxtahækkanir hófust.
Um 90% af lánum Arbor er í fjölbýlum, samkvæmt Fitch Ratings, og þó að eftirspurn eftir fjölbýlum sé meiri hafa þau tapað um 30% af virði sínu.
Að mati vogunarsjóðanna hefur lántakendum tekist að verja sig frá háum vöxtum með ýmsum leiðum hingað til en að þeirra mati muni vanskil aukast til muna á næsta ári.