Donald Trump var ekki léttur í lund í dag á leið á leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Haag í Hollandi.

Hann ræddi við blaðamenn í garði Hvíta hússins rétt áður en hann hélt um borð í þyrlu embættisins, Marine One.

Engar nýjar fréttir hafa verið af átökum milli Ísrael og Írans og ólíklegt er að aðilar hafi áhuga á því að reita Trump frekar til reiði.

Olíuverð hefur haldið áfram að lækka. WTI olía hefur lækkað um 4,69% í dag og er komin í 65,25 dali fatið. Brent Norðursjávarolía hefur lækkað um 4,73% og stendur í 65,44 dölum.