Stéttarfélagið VR hagnaðist um 928 milljónir í fyrra sem er töluverður viðsnúningur á rekstri félagsins en það tapaði 59 milljónum árið 2022.
VR, sem er stærsta stéttarfélag landsins, var með 40.612 skráðra félaga að meðaltali á árinu 2023 og hafði fjölgað um 4,4% frá árinu 2022. Félagsgjöld í fyrra námu 2,1 milljarði króna en heildartekjur stéttarfélagsins með sjúkrasjóðs- og orlofsiðgjöldum námu rúmum 6 milljörðum króna.
Félagið greiddi um 3,3 milljarða í bætur og styrki og var skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 1,3 milljarðar.
Laun Ragnars um 20 milljónir samtals
Laun yfirstjórnar námu á árinu voru 54,4 milljónir króna sem er örlítil hækkun úr 52,9 milljónum árið 2022.
Laun og bifreiðastyrkir Ragnars Þórs Ingólfssonar formanns VR voru 16 milljónir króna en hann fékk einnig greiddar 3,7 milljónir króna fyrir formennsku í LÍV.
Laun og bifreiðastyrkur framkvæmdastjóra voru 20 milljónir króna á meðan laun stjórnar voru 14,7 milljónir.
Handbært fé félagsins í árslok var um 200 milljónir króna sem er um 100 milljónum lægra en í upphafi árs.