Bandaríska sjálfkeyrandi leigubílafyrirtækið Waymo segist vilja koma bílum sínum aftur fyrir á götum New York-borgar. Áform liggja fyrir um að hefja starfsemi þar í fyrsta sinn síðan 2021 þegar Waymo vann við að kortleggja hluta af Manhattan.
Á vef WSJ segir hins vegar að vegna laga í New York muni einstaklingar þurfa að sitja á bak við stýrið.
Ríkislög í New York banna sjálfkeyrandi bíla en Waymo segist vera að þrýsta á löggjafa til breyta þeim lögum. Samhliða því hefur fyrirtækið einnig sótt um leyfi í New York-borg til að fá að sjálfkeyrandi bíla á Manhattan, en þó með sérfræðing í bílstjórasætinu.
Ef Waymo nær sínu fram þá verða sjálfkeyrandi bílar fyrirtækisins þeir fyrstu til að keyra um götur New York en borgin er talin vera mjög arðbær í ljósi þeirra fjölda leigubíla sem hafa einkennt borgina um áratugi.
Fyrirtækið mun þó standa frammi fyrir ýmsum áskorunum með rekstri í fjölmennustu borg Bandaríkjanna. New York er með afar flókið götukerfi sem er sífellt að breytast og þarf Waymo því að huga sérstaklega að öryggi og öðrum þáttum.
Waymo hefur engu að síður náð töluverðum árangri á undanförnum árum en fyrirtækið segist bjóða upp á meira en 250 þúsund sjálfkeyrandi ferðir í hverri viku, miðað við aðeins tíu þúsund á viku fyrir tveimur árum.