Alþjóðlega veitingakeðjan Wok to Walk opnaði í dag fyrsta veitingastað sinn á Íslandi á Smáratorgi og verða síðan tveir til viðbótar opnaðir innan tíðar.
Wok to Walk rekur yfir eitt hundrað veitingastaði við góðan orðstír í mörgum helstu stórborgum heims í 18 löndum og nú hefur Ísland bæst í hópinn. Veitingastaðurinn er í eigu japanska stórfyrirtækisins Toridoll en er rekinn af Einari Erni Einarssyni hér á landi.
„Wok to Walk er líklega öflugasta keðjan í hópi Wok-veitingastaða í heiminum og vinsælasti asíski götubiti Evrópu og það er mjög spennandi að taka þátt í opnuninni hér heima, enda maturinn frábær og vörumerkið sterkt. Gæði og úrval er lykilatriði hjá Wok to Walk og það tryggjum við,” segir Einar Örn Einarsson, framkvæmdastjóri Wok to Walk.
Fyrsti Wok to Walk veitingastaðurinn á Íslandi er á Smáratorgi en reiknað er með að næsti staður opni að Reykjavíkurvegi 66 í Hafnarfirði og þriðji staðurinn í Borgartúni 29 í Reykjavík.
Einar Örn hefur áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur m.a. veitingastaði í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn.