Finnska heimsendingarþjónustan Wolt hefur starfsemi á Íslandi í dag. Fyrst um sinn starfar Wolt einungis í póstnúmerunum 101-108 í Reykjavík, 200 í Kópavogi og á Seltjarnarnesi en fljótlega mun starfssvæðið stækka innan höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar kemur fram að fólk geti pantað fjölda ólíkra vara með Wolt og fengið þær sendar heim að dyrum 30-40 mínútum síðar. Allt frá blómum og réttum af veitingastöðum til raftækja og matvara. Þegar sé hægt að panta úr bakaríi hjá Wolt og fljótlega bætist við fiskbúð. Einn vinsælasti vöruflokkurinn hjá Wolt á heimsvísu séu hjálpartæki ástarlífsins en þau sé einnig að finna í íslenska appinu.

Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt í Noregi og á Íslandi, segist afar spennt vegna inngöngu Wolts á Íslandsmarkað. „Wolt hóf göngu sína sem sendingarþjónusta á Norðurlöndunum og við erum því sannfærð um að við getum einnig boðið íslenskum viðskiptavinum upp á framúrskarandi þjónustu. Við viljum að þjónustan sé þægileg og á viðráðanlegu verði svo að fólki sé kleift að nýta sér hana dagsdaglega.“

Loks hægt að panta KFC heim að dyrum

Sendingargjald Wolt er að lágmarki 499 kr. og að meðaltali er gjaldið undir 1.000 kr. Nú þegar hafa um 100 veitingastaðir skráð sig hjá Wolt, auk matvöruverslunar, blómabúðar, bókabúðar og barnavöruverslunar. Þá er þegar hægt að panta mat frá ýmsum skyndibitastöðum eins og Joe & the Juice og Hraðlestinni og fljótlega einnig frá KFC, sem eru tímamót því aldrei fyrr hefur verið hægt að panta KFC-kjúkling í heimsendingu á Íslandi.

„Það gerist reglulega að fólk þurfi að fá hluti senda heim með hraði. Stundum klárast bleyjurnar óvænt eða fólk man skyndilega að mamma þeirra á afmæli í dag og vill senda henni blómvönd. Með tilkomu Wolt er nú hægt að opna appið, velja vöruna sem þig vantar og panta hana, allt á örfáum mínútum,“ segir Elisabeth. „Sendill frá Wolt kemur með sendinguna upp að dyrum eftir 30-40 mínútur. Greiðslan fer fram í gegnum appið og þjónustufulltrúar okkar eru ávallt til taks á meðan sendingu og pöntun stendur.“