Wolt hóf samstarf í vikunni við áfengisverslunina Smáríkið til að geta boðið viðskiptavinum sínum þann kost að panta sér áfengi í gegnum smáforrit fyrirtækisins. Wolt hefur hingað til aðeins sent áfengi til viðskiptavina sem þriðji aðili í gegnum sendlaþjónustu sína.

Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar Wolt á Íslandi, segir í samtali við Viðskiptablaðið að fyrirtækið hafi eytt miklum tíma í að skoða reglugerðina þar sem Wolt vildi ekki fara á skjön við lög.

„Við erum búin að vera að bjóða upp á þjónustu með áfengi þar sem við erum í raun að fara síðustu kílómetrana fyrir þig en eftir því sem við skoðuðum þetta meira þá sáum við að við gátum boðið upp á þessa þjónustu fyrir þau fyrirtæki sem standa í þessum rekstri.“

Hann segir að Wolt hafi séð töluverða eftirspurn eftir slíkri þjónustu en þessi valkostur sé til að mynda mjög vel nýttur í öðrum löndum eins og í Danmörku og Noregi. Það sé þá mikil tilhlökkun meðal Wolt á Íslandi að geta boðið upp á þessa þjónustu.

„Mín persónulega skoðun er sú að þetta verði líka hvatning fyrir fólk til að ná saman um einhvers konar framtíðarsamkomulag í þessum málum. Drykkjumenning Íslendinga virðist líka hafa snarbatnað með auknu aðgengi. Þegar fólk mátti til dæmis bara kaupa áfengi á ákveðnum tíma þá virkaði þetta svolítið eins og forboðinn ávöxtur.“

Til að byrja með mun Wolt keyra verkefnið í gegn með Smáríkinu en Jóhann segir að fyrirtækið muni svo sjá hvernig framhaldið verði meðal annarra fyrirtækja sem selji áfengi. Upplifun viðskiptavina verði þá nákvæmlega eins í smáforritinu og þegar verið er að panta veitingar.

„Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og færð svo sendan PIN-kóða sem þú þarft að lesa upp fyrir sendilinn. Á sama tíma munt þú þurfa að sýna sendlinum skilríki og verða áfengisvörurnar ekki afhentar nema allir þessir þrír þættir séu uppfylltir.“

Hann segir að Wolt gefi engan afslátt þegar kemur að lögum og öryggi og að þetta þriggja þátta öryggistékk bjóði í raun upp á meira öryggi en hjá verslunum ÁTVR, þar sem einn starfsmaður stendur við afgreiðslukassann og passar upp á skilríki viðskiptavina.

„Við opnuðum fyrir ákveðna þjónustu sem var ekki áður til á Íslandi þar sem fólk gat pantað vörur til sína með miklum hraða og það er frábært að geta boðið upp á það. Þetta snýst líka bara um að mæta þörfum fólks í nútímasamfélagi.“