Laugar ehf., sem rekur 18 líkamsræktarstöðvar undir merkjum World Class, hagnaðist um 665 milljónir króna árið 2023 sem er um 50% meiri hagnaður en á árinu á undan.
World Class hagnaðist um 433 milljónir árið 2022 sem var þá þreföldun frá fyrra ári.
Eigið fé félagsins í lok árs 2023 var jákvætt um 1,5 milljarða en var 940 milljónir í byrjun árs. Tekjur World Class námu 5,4 milljörðum króna í fyrra.
Eignir Lauga ehf. voru bókfærðar á 2,4 milljarða króna í árslok. Stjórn félagsins leggur til að hagnaði ársins verði ráðstafað til næsta árs og ekki er gerð tillaga um úthlutun arðs en félagið greiddi 100 milljónir í arð til þriggja hluthafa sinna í fyrra.
Alls voru 149 stöðugildi hjá World Class á árinu sem er hækkun úr 123 frá árinu 2022. Launagreiðslur félagsins námu rúmum milljarði króna í fyrra.
Systurfélagið Í toppformi, sem heldur á fasteignum World Class, á eftir að skila ársreikningi.
Hjónin Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir eiga 36,6% hvort í félögunum tveimur og Sigurður Leifsson fer með 26,8% hlut.