Fjártæknifyrirtækið Yay og Landsbankinn hafa stofnað nýtt félag, Yayland ehf., sem mun sérhæfa sig í þróun, sölu, útgáfu og rekstri á stafrænum og hefðbundnum inneignarkortum, gjafabréfum og vildarkortum.
Í tilkynningu segir að Yayland muni taka yfir alla gjafakortastarfsemi YAY á Íslandi og jafnframt alla útgáfu og rekstur á inneignarkortum Landsbankans.
„Við sjáum gríðarleg tækifæri í því að þróa og stýra inneignarkortum fyrir fyrirtæki, hvort sem það eru gjafakort, styrktarkerfi eða umbunarkerfi. Yayland verður leiðandi fjártæknifyrirtæki á Íslandi á þessu sviði og við hlökkum til að þjónusta bæði lítil og stór fyrirtæki og stofnanir með snjöllum, stafrænum lausnum,“ segir Ragnar Árnason, einn af stofnendum Yay og framkvæmdastjóri Yayland.
Yay hefur á undanförnum árum séð um ýmsa þjónustu, meðal annars með útgáfu Ferðagjafarinnar fyrir íslenska ríkið, rekstri gjafabréfaappsins Yay og með þjónustu við yfir 250 fyrirtæki og samstarfsaðila.
Á sama tíma hefur Landsbankinn haldið úti gjafakortaþjónustu fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins í formi inneignarkorta, með sterkum innviðum og áratugareynslu í dreifingu og þjónustu.
„Við erum spennt fyrir samstarfinu við Yay í gegnum Yayland. Það er mikil þróun í inneignarkortum og spennandi tækifæri til að nýta stafræna dreifingu korta. Með samstarfinu sameinum við krafta okkar í inneignakortum og nýtum sameiginlega styrkleika og reynslu til að bjóða fyrirtækjum sem hafa inneignarkort í sínu vöruframboði aukinn sveigjanleika og fjölbreyttari útfærslur fyrir sína viðskiptavini," segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.