Fjártæknifyrirækið YAY, sem á og rekur YAY gjafabréfakerfið og sá meðal annars um Ferðagjöfina fyrir íslenska ríkið, hefur samið við írska fjárfestingarfyrirtækið Olympia Capital um uppsetningu, sölu og dreifingu á þjónustu YAY á Írlandi.
„Þetta er annar samningurinn á þessu ári sem við gerum um nýtt markaðssvæði svo við erum afar ánægð með árangurinn á árinu," segir Ari Steinarsson, framkvæmdastjóri YAY.
YAY gerði í lok sumars samstarfssamning við kanadísku kortaþjónustuna og fjármálatæknifyrirtækið Everyday People Financial Inc. Everyday People og fór með YAY gjafakortinm inn á markað í Kanada.
„Okkar fókus núna er að koma þessum nýju markaðssvæðum upp og einnig erum við að undirbúa frekari fjölgun markaðssvæða. Það eru þó nokkrir markaðir komnir að samningaborðinu. Það er því margt spennandi og áhugavert í gangi hjá okkur. Kanada var fyrsti samningurinn og nú Írland sem er jafnframt fyrsta markaðssvæði YAY í Evrópu fyrir utan Ísland. Við erum að horfa núna meira á markaði í mið og austur Evrópu í framhaldinu," segir Ari.
Olympia Capital er írskt fjárfestingarfyrirtæki með áratuga reynslu af því að koma vörum á írskan markað.
„Nýsköpun og tæknki Yay gerir okkur kleift að koma með nýja og spennandi vöru á markað á Írlandi. Það ríkir mikil samkeppni á gjafakortamarkaðnum á Írlandi sem gerir þetta enn meira spennandi. Þessi einstaka nálgun fyrir viðskiptavini mun gera okkur fært að hafa mikil og jákvæð áhrif á írska markaðinn. Við hlökkum til að starfa náið með YAY á Íslandi í þessu verkefni,“ er haft eftir Lorcan Burke, framkvæmdastjóri YAY Venture Ireland sem var stofnað í kringum verkefnið.