lista yfir alla þátttakendur í útboði á eftirstandandi 45% hlut ríkisins í Íslandsbanka. Yfir 31 þúsund einstaklingar fengu úthlutun í tilboðsbók A en hún náði til 86,9 milljarða af 90,6 milljarða söluandvirði útboðsins.

Fjármálaráðuneytið birti um fjögurleytið í dag Hámarksúthlutun í tilboðsbók A nam 19.999.927 krónur en tilboð í henni voru ekki skert vegna forgangs almennings. Alls fengu 1.529 einstaklingar hámarksúthlutun í bók A í útboðinu.

Líkt og Viðskiptablaðið hefur fjallað um var nokkuð um að efnameiri einstaklingar hefðu safnað kennitölum í útboðinu og reynt þannig reynt að tryggja sér stærri hlut á afslætti.

Útboðsgengi í útboðinu var 106,56 krónur á hlut eða sem samsvarar 6,9% afslætti miðað við síðasta dagslokagengi hlutabréfa Íslandsbanka áður en útboðið hófst. Gengi Íslandsbanka stóð í 118,5 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar í dag og er því 11,2% yfir útboðsgenginu.