Alvotech tilkynnti í dag að fyrirtækið afhent bréf til þátttakenda í 10 milljarða króna lokuðu hlutafjárútboði sem fram fór þann 4. júní síðastliðinn. Í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar kemur fram að um 40 stofnanafjárfestar hafi tekið þátt í útboðinu.

Um 60% af heildareftirspurninni kom frá fjárfestum í Svíþjóð, Noregi og Bretlandi, um 30% frá sjóðum í Bandaríkjunum og um 10% frá Íslandi. Yfir 80% bréfanna voru keypt af fjárfestum sem eru nýir hluthafar í Alvotech.

„Það er okkur ánægja að þessi stóri hópur nýrra hluthafa, sem hafa mikla reynslu af fjárfestingu í heilbrigðisfyrirtækjum og líftækni, ákveði að taka þátt í þessari mögnuðu vegferð Alvotech. Við höfum styrkt og breikkað erlenda hluthafahópinn og getum búist við auknu floti í kauphöllinni í Stokkhólmi, en þegar eru 8,5 milljónir bréfa komnar á markaðinn í Svíþjóð,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.

Olíusjóður Noregs var meðal þátttakenda í útboðinu, samkvæmt frétt Innherja. Þar kom fram að tíu umsvifamestu erlendu sjóðuirnir í útboðinu hafi staðið fyrir ríflega 70% af söluandvirðinu.

Öll bréfin sem úthlutað var hafa nú verið afhent fjárfestum í útboðinu, í heild 7,5 milljón hlutir í eigu dótturfélags Alvotech, Alvotech Manco ehf