Samstæða Samkaupa, sem rekur sextíu verslanir undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland, tapaði tæplega 910 milljónum króna árið 2024, samanborið við 268 milljóna króna hagnað árið 2023, samkvæmt ársskýrslu félagsins.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 41,6 milljörðum króna og drógust saman um 1,8% frá fyrra ári. Framlegð af vörusölu nam 10,2 milljörðum, eða 24,5% af tekjum, sem er lækkun upp á einn milljarð króna frá fyrra ári.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1.550 milljónum króna í fyrra samanborið við 2.693 milljónir árið 2023 og lækkaði því um 42,4% milli ára.
Óvíst hvort verslunin í Grindavík opni aftur
Í ársskýrslunni er bent á að verslun félagsins í Grindavík hafi verið lokuð allt rekstrarárið 2024. Félagið segir óvíst hvort eða hvenær verslunin verður opnuð aftur. Bókfært virði fastafjármuna í Grindavík var 113 milljónir í árslok 2024 og bókfært virði vörubirgða var 41 milljón.
„Stjórnendur telja eignirnar að fullu tryggðar og reikna með að fá þær bættar að frádreginni sjálfsábyrgð. Því hafa eignirnar ekki verið færðar niður á árinu.“
Juku hlutafé um milljarð
Eignir Samkaupa voru bókfærðar á 17,8 milljarða króna í lok síðasta árs. Eigið fé var um 2,2 milljarðar og eiginfjárhlutfall um 12,2%, samanborið við 17,2% ári áður.
Stjórn félagsins ákvað í desember síðastliðnum að nýta heimild til að hækka hlutafé félagsins með útgáfu nýrra hluta. Hlutafé félagsins var aukið um 996 milljónir að söluvirði.
„Var þetta gert til að styrkja eiginfjárstöðu félagsins og til að auðvelda félaginu að ná markmiðum sínum um framtíðarvöxt,“ segir í ársreikningnum.
Umrædd hlutafjáraukning, sem fór fram í janúar, var einkum nýtt til greiðslu á skuldum við viðskiptabanka félagsins, Íslandsbanka, samkvæmt Innherja. Áskriftargengið í hlutafjáraukningunni var 24 krónur á hlut og var félagið þá metið á 9,4 milljarða króna (pre-money).
Nokkrum dögum fyrir umrædda hlutafjáraukningu skrifuðu Samkaup og Heimkaup undir samkomulag um helstu forsendur sameiningar félaganna. Samkeppniseftirlitið heimilaði samrunann fyrir mánuði síðan.
Þann 22. maí undirrituðu Orkan, dótturfélag Skeljar, kaupsamning um kaup á öllum 53,1% hlut Kaupfélags Suðurnesja í Samkaupum fyrir 2,9 milljarða króna. Kaupverið verður greitt með afhendingu á nýju hlutafé í Orkunni. Samkaup er metið á 5,6 milljarða króna í viðskiptunum eða 13 krónur á hlut.
Viðskiptin eru m.a. háð því að Orkan hafi komist að skuldbindandi samkomulagi við aðra hluthafa í Samkaupum um kaup á eignarhlut þeirra í félaginu þannig að samanlagður eignarhlutur Orkunnar og annarra aðila tengdum Skeljar nemi að lágmarki 90,01% í kjölfar viðskipta.
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar, sagði í tilkynningu til Kauphallarinnar að Samkaup og Heimkaup hefðu glímt við áskoranir í sínum rekstri. Með sameiningu félaganna og endurskipulagningu rekstrar verði til öflugur keppinautur á markaði.
Stærst hluthafar Samkaupa í árslok 2024
Hlutur |
51,3% |
18,1% |
10,7% |
10,0% |
5,0% |
2,8% |
0,6% |
0,2% |
0,2% |
0,1% |