Málmleitarfélagið Amaroq Minerals hefur tilkynnt um kaup á öllu hlutafé fyrirtækisins Black Angel Mining A/S fyrir 10 milljónir dala, eða ríflega 1,2 milljarða króna. Auk þess er Amaroq langt komið með kaup á Kangerluarsuk rannsóknarleyfum fyrir allt að 2 milljónir dala. Kaupverðið verður greitt með útgáfu hlutafjár.
Með ofangreindum kaupum er gert ráð fyrir að Amaroq verði stærsti leyfishafinn á Grænlandi, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Samhliða tilkynnir Amaroq um að félagið hyggist sækja 30 milljónir punda, eða um 5 milljarða króna, með hlutafjáraukningu sem færi fram á genginu 144 krónur á hlut.
Til stendur að nýta fjármögnunina til að stofna nýja auðlindamiðstöð (e. resources hub) í Vestur-Grænlandi ásamt því að hraða og dýpka rannsóknarborunum. Jafnframt styðji áformaða hlutafjáraukningin við efnahagsreikning félagsins.
Kaupa af Eldi og Sigurbirni
Fram kemur að Black Angel er í endanlegri eigu BAMAS ehf., sem er í 72% eigu þriggja stjórnarmanna Amaroq. Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, á 42,9% í BAMAS í gegnum félagið sitt Vatnar hf. og Sigurbjörn Þorkelsson á 20,6% hlut í gegnum Fossar Holdings Ltd.
Í tilkynningunni segir að óháðir stjórnarmenn Amaroq telji kjörin í viðskiptunum sanngjörn og ásættanleg fyrir hluthafa Amaroq, og er m.a. vísað í ráðgjöf frá Panmure Liberum.
Black Angel náman er á Maamorilik-svæðinu á norðverstur-hluta Grænlands. Hún var í vinnslu í 17 ár, að því er segir í viðtali við Eld í Morgunblaðinu frá árinu 2016.