Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, ber höfuð og herðar yfir annað fjölmiðlafólk á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar þetta árið líkt og undanfarin ár. Miðað við greitt útsvar þénaði hann að jafnaði um 5,9 milljónir króna á mánuði á síðasta ári.

Á eftir honum kemur samstarfsmaður hans á Morgunblaðinu Haraldur Johannessen, framkvæmdastjóri Árvakurs, með rúmlega 3,5 milljónir á mánuði að jafnaði.

Lára Zulima Ómarsdóttir, fyrrverandi samskiptastjóri Aztiq, situr svo í þriðja sæti listans en meðal mánaðartekjur hennar árið 2023 námu rétt rúmlega 3 milljónum króna.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.