Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, er efstur á tekjulista fjölmiðlafólks með 5,7 milljónir króna á mánuði. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, er með 4,5 milljónir.
Þrettán fréttamenn og dagskrárgerðarfólk á RÚV voru með yfir 1 milljón króna í laun í fyrra. Af þessum þrettán hættu þrír störfum hjá RÚV í fyrra en það voru Lára Ómarsdóttir, Sigmar Guðmundsson og Einar Þorsteinsson.
Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæsta fjölmiðlafólkið:
- Davíð Oddsson, ritstjóri Mbl - 5,7 milljónir króna
- Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri á Viljanum - 4,5 milljónir
- Haraldur Johannessen, frkvstj. Árvakurs - 3,4 milljónir
- Logi Bergmann Eiðsson, fv. fréttam. Árvakurs - 2,9 milljónir
- Þórhallur Gunnarsson, frkvstj. miðla Sýnar - 2,3 milljónir
- Lára Ómarsdóttir, uppl.fulltr. Aztiq og fv. fréttak. RÚV - 2,2 milljónir
- Bogi Ágústsson, fréttam. RÚV - 2,1 milljón
- Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttam. - 1,9 milljónir
- Sölvi Tryggvason, blaðamaður - 1,7 milljónir
- Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, uppl.ftr. Íslenskrar erfðagr. - 1,7 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði