Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, var tekjuhæsti forstjóri íslenskra flugfélaga í fyrra samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í gær. Bogi Nils, sem tók við sem forstjóri Icelandair árið 2018, var með tæplega 5,1 milljón króna í mánaðarlaun á síðasta ári. Til samanburðar var hann með 5,5 milljónir árið 2021.

Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, var einnig með um 5 milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2022. Til samanburðar var Baldvin Már með 5,9 milljónir í árslaun árið 2021 samkvæmt Tekjublaðinu sem kom út fyrir ári.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, var með 3,6 milljónir króna í mánaðarlaun á síðasta ári. Birgir var með um 3,4 milljónir árið 2021.

Mánaðartekjur forstjóra stóru flugfélaganna þriggja:

  • Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group – 5,12 milljónir króna
  • Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta – 5,04 milljónir króna.
  • Birgir Jónsson, forstjóri Play – 3,55 milljónir króna.

Þess má geta að Bogi Nils og Birgir hafa báðir fengið kauprétti sem geta reynst ábatasamir ef hlutabréfaverð flugfélaganna hækka á næstu árum.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2022 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2021, sem greiddur var árið 2022. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.