Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, var tekjuhæstur í flokknum forseti, alþingismenn og ráðherrar í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út á þriðjudaginn.
Ólafur var með 4,34 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra eða um tæpri milljón meira en Guðni Th. Jóhannesson sem var næst launahæstur með 3,37 milljónir á mánuði.
Vigdís Finnbogadóttir var í þriðja sæti listans með 2,93 milljónir á mánuði.
Ráðherrar og alþingismenn raða sér síðan í næstu sætin þar á eftir.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, greiddi hvorki tekju- né fjármagnstekjuskatt á Íslandi í fyrra.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.