Örn Árnason er launahæsti leikari landsins samkvæmt Tekjublaðinu en hann þénaði 1,531 milljón krónur á mánuði í fyrra.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Baltasar Kormákur Baltasarsson er langefstur meðal íslenskra leikstjóra með rúma eina og hálfa milljón á mánuði.
Hin margverðlauna Halldóra Geirharðsdóttir er síðan launahæsta leikkona landsins með 1,384 milljónir króna í mánaðarlaun. Næst henni kemur Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona en hún var með 1,144 milljónir kr. í mánaðarlaun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir var þriðja launahæsta leikkona landsins með 964 þúsund krónur á mánuði.
Borgarleikhússtjóri þénar meira en Þjóðleikhússstjóri
Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri tók inn 1,330 milljónir króna á mánuði í fyrra á meðan Steinunn Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri Þjóðleikhússsins var með 1,022 milljónir króna í mánaðarlaun.
Brynhildur Guðjónsdóttir, Borgarleikhússtjóri, þénar meira en þau bæði með 1,476 milljónir króna í mánaðarlaun.
Atli Geir Grétarsson, leikmyndahönnuður, þénaði mest allra í bransanum samkvæmt Tekjublaðinu en hann var með 2,310 milljónir á mánuði.
Á listanum í Tekjublaðinu má finna fleiri þekkta leikara eins og Björn Thors, Hilmi Snæ, Völu Kristínu, Rúnar Frey og Ólaf Darra svo dæmi séu tekin.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
- Atli Geir Grétarsson, leikmyndahönnuður – 2,310 - milljónir kr.
- Örn Árnason, leikari 1,531- milljónir kr.
- Baltasar K. Baltasarsson, leikstjóri 1,527- milljónir kr.
- Brynhildur Guðjónsdóttir, Borgarleikhússtjóri – 1,476 milljónir kr.
- Halldóra Geirharðsdóttir, leikari - 1,384 - milljónir kr.
- Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússstjóri – 1,330 milljónir kr.
- Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndagerðamaður -1,156- milljónir kr.
- Jóhanna Vigdís Arnardóttir, leikkona 1,144- milljónir kr.
- Þórhallur Sigurðsson, leikari 1,122- milljónir kr.
- Eggert Þorleifsson, leikari 1,048 -- milljónir kr.
Um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2022 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og öðrum aukastörfum og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2021, sem greiddur var árið 2022. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Hafa verður í huga að inni í tekjunum getur líka verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 4.495 kr. á mánuði