Atli Geir Grétarsson, leikmyndahönnuður, var með rúmar 2,6 milljónir í laun samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar og er því launahæsti Íslendingurinn innan kvikmyndageirans. Tekjublaðið kom út í vikunni og fæst nú í öllum helstu verslunum landsins.

Næstefstur á listanum yfir leikara og leikstjóra var grínleikarinn Örn Árnason, sem hefur glatt landsmenn um áraraðir með hæfileikum sínum í Spaugstofunni og Áramótaskaupum en hann var með 1,7 milljónir í laun.

Þar á eftir má finna leikarann Ólaf Darra Ólafsson sem var með 1,6 milljónir í mánaðarlaun. Pálmi Gestsson, Ólafía Hrönn og Steinunn Ólína prýða einnig listann ásamt mörgum öðrum landsþekktum einstaklingum.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2023 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.